Breskir miðlar loga eftir stóra skell Arsenal
What the source reports
Breskir fjölmiðlar fara hörðum orðum um frammistöðu Arsenal eftir að liðið féll úr leik í enska deildabikarnum gegn Fleetwood Town í gærkvöldi. Fleetwood, sem leikur í fjórðu efstu deild Englands, hafði betur í vítaspyrnukeppni, staðan var 1-1 eftir venjulegan leiktíma. Arsenal var mun meira með boltann og skapaði sér fjölda marktækifæra en tókst ekki að nýta yfirburðina. Viktor Gyökeres jafnaði metin í upphafi síðari hálfleiks eftir að Aaron Loupalo-Bi hafði komið heimamönnum yfir í þeim fyrri. Markvörður Fleetwood, Jay Lynch, reyndist hetja liðsins, varði mikilvæg skot undir lok leiksins og varði síðan vítaspyrnu frá Bruno Guimarães þegar komið var fram í vítaspyrnukeppnina. Conor Haughey tryggði Fleetwood svo tímamótasigur eftir það. Ótrúlegt augnablik fyrir Fleetwood Fyrir Fleetwood er sigurinn sögulegur.
Liðið er 84 sætum neðar en Arsenal í enska deildakerfinu og hafði aðeins unnið einn af síðustu átta deildarleikjum sínum. Paul Merson, sérfræðingur Sky Sports og fyrrverandi leikmaður Arsenal, sagði úrslitin af þeim óvæntustu í sögu deildarbikarsins. Sigur Fleetwood á ríkjandi Englandsmeisturunum verður vafalítið lengi í minnum leikmanna sem og stuðningsmanna liðsins. „Þetta verður skráð í sögubækurnar sem óvæntasti sigurinn í sögu deildarbikarsins. “ Arsenal mátti þola tap fyrir D-deilarliði Fleetwood Town í enska deildarbikarnum eftir vítaspyrnukeppni í gærkvöld. Sérfræðingar segja úrslitin ein af þeim óvæntustu í sögunni því 84 sætum munar á liðunum. Einn af stærstu skellunum? Þessi óvæntu úrslit hafa verið borin saman við önnur eins í gegnum tíðina. Plymouth vann eftirminnilegan 1-0 sigur á Liverpool í FA bikarnum í fyrra. Plymouth sat þá á botni næstefstu deildar og Liverpool þá í efsta sæti. Manchester United tapaði 3-0 fyrir York City á deildarbikarnum árið…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗