Boluda Shipping kaupir Samskip
What the source reports
Spænska fjölskyldufyrirtækið Boluda Shipping hefur keypt allt hlutafé flutningafyrirtækisins Samskipa. Skrifað var undir kaupsamning á skrifstofu Samskipa í Kjalarvogi í dag. Starfsmönnum Samskipa var tilkynnt um kaupin á starfsmannafundi eftir hádegi í dag. Kaupverð trúnaðarmál Ráðgert er að kaupin gangi í gegn 1. janúar 2027, að fengnu samþykki eftirlitsaðila og að uppfylltum öðrum skilyrðum. Kaupverðið er trúnaðarmál. Stærstu hluthafar félagsins, Ólafur Ólafsson og Ingibjörg Kristjánsdóttir, ganga út úr eigendahópnum, en þau hafa byggt upp fyrirtækið í yfir 30 ár. Sameinað félag myndar umfangsmesta sjóflutninganet Evrópu, allt frá Norður-Evrópu til Íberíuskagans, Kanaríeyja og Vestur-Afríku. Ráðgert er að í netinu verði 32 skip á 18 siglingaleiðum, 21 hafnarbakki, víðfeðmt lestarkerfi og yfir 500 flutningabílar sem tengja markaðinn í 28 löndum.
Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að sérstaða Samskipa felist í að tengja skipaflutninga við lestir og flutningabíla. Starfsmenn félaganna eru um 11. 500 manns og er samanlögð velta rúmlega tveir milljarðar evra. Boluda „öflugur og traustur bakhjarl“ Ólafur Orri Ólafsson mun áfram sitja sem forstjóri samstæðu Samskipa. „Við höfum byggt upp Samskip í meira en þrjá áratugi og gert félagið að leiðandi fyrirtæki í fjölþátta flutningum í Evrópu, með skipum, lestum og bílum,“ er haft eftir Ólafi í tilkynningu. „Með Boluda fá Samskip öflugan og traustan bakhjarl sem deilir sýn okkar og hefur vilja til að fjárfesta í næsta vaxtarskeiði. Fyrir okkur fjölskylduna eru þetta góð tíðindi og ég er sannfærður um að hið sama eigi við um Samskip og íslenskt atvinnulíf. “ Flutningsfyrirtækið Samskip var stofnað árið 1990 og hóf formlega starfsemi sína snemma árs 1991. Félagið byggir á grunni skipadeildar Sambands íslenskra samvinnufélaga…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗