Blikar leggja rysjótt gengi að baki og Mosfellingar gætu skráð sig á spjöld sögunnar
What the source reports
Bikarúrslit karla í fótbolta eru á morgun þegar Afturelding og Breiðablik eigast við. Afturelding spilar í Lengjudeildinni en er á leið upp í efstu deild eftir gott gengi á tímabilinu. Þá er fyrsti stóri titill félagsins í seilingarfjarlægð. „Maður reynir að hugsa ekki um titilinn sjálfan heldur bara um vegferðina sem við erum á og leikinn stóra. Hvernig við ætlum að nálgast hann. En það er geggjað að við séum komnir í þennan séns og vonandi verða þeir fleiri á næstu árum,“ segir Aron Elí Sævarsson fyrirliði Aftureldingar. 17 ár frá bikarmeistaratitlinum Breiðablik hefur einu sinni áður orðið bikarmeistari. Það var árið 2009 og þrír leikmenn sigurliðsins spila með Blikum í dag. Það eru Kristinn Steindórsson, Kristinn Jónsson og Andri Rafn Yeoman.
Alls eru 17 ár síðan og Höskuldur segir Kópavogsliðið áfjáð í bikarinn. „Það er mikið hungur í hópnum. Við erum búnir að stefna að því lengi að komast hingað. Svo hef ég persónulega ekki náð því í 14 tímabil þannig það er komin mikil spenna. “ Hvað segja hlustendur Útvarps Sögu? Fótbolti. net stendur fyrir spyr lesendur sína um þessar mundir hvort liðið þeir telji muni hampa titlinum. Þar má sjá mikinn meðbyr með Mosfellingum en Aron Elí gefur fremur lítið fyrir það. „Þetta fer náttúrlega allt eftir því hvern þú spyrð. Þetta er eins og í pólitískum skoðanakönnunum. Ef þú spyrð Útvarp Sögu hver er að fara vinna kosningarnar þá veit maður svarið. “ Skilja deildina eftir Breiðablik hefur spilað talsvert undir væntingum í Bestu deildinni á…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗