„Best fyrir alla að sannleikurinn komi fram“
What the source reports
Guðmundur Ingi var einn stofnenda Flokks fólksins, þingflokksformaður um árabil og varaformaður þegar hann sagði sig úr flokknum um miðjan apríl. Hann var mennta- og barnamálaráðherra frá mars 2025 fram í janúar í ár þegar hann sagði af sér embætti vegna heilsufars. Hann situr nú á þingi utan flokka og styður ríkisstjórnina. Guðmundur Ingi fór í veikindaleyfi fyrir síðustu jól og þá ákvað Inga Sæland formaður Flokks fólksins að gera breytingar á ráðherraliði flokksins; hún tók við embætti Guðmundar Inga og Ragnar Þór Ingólfsson kom nýr inn í ríkisstjórn og tók við félags- og húsnæðismálaráðuneytinu sem Inga hafði gegnt. Í yfirlýsingu sem Guðmundur Ingi sendi frá sér við úrsögn sína úr Flokki fólksins í mars bar hann meðal annars við trúnaðarbresti.
Hann var í viðtali á Morgunvaktinni á Rás 1 í morgun þar sem meðal annars rætt var um úrsögn hans úr flokknum. „Það var röð atvika sem varð þess valdandi og ég skal alveg viðurkenna að það hefur með það að gera að ég var settur út úr ráðherradómnum. Ekki vegna þess að ég var settur út af ráðherradómnum, heldur út af þeirri aðferð sem var beitt,“ sagði Guðmundur Ingi. Inntur eftir nánari útskýringum, sagðist hann ekki tilbúinn að svo komnu máli. En ég verð að fara að segja frá því... ég verð bara að segja eins og er: sögurnar sem ég heyrði eru svo ótrúlegar. Um sumar þeirra væri hægt að skrifa sögu. Pólitíkin er tík „Pólitíkin er tík og ég verð að segja eins og er að þegar einhver bönd beinast að mér, þá er það í lagi. En þegar það er komið út fyrir mig,…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗