One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Bækur Sally Rooney seljast sem aldrei fyrr á Írlandi

Bækur Sally Rooney seljast sem aldrei fyrr á Írlandi

IcelandBy Fréttastofa RÚVNov 2, 2026, 4:33 AM
Bækur Sally Rooney seljast sem aldrei fyrr á Írlandi
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDNov 2, 2026, 4:33 AM
NEWS BRIEF

What the source reports

Bókabúðir bæði á Írlandi og Norður-Írlandi hafa aukið sölu sína á bókum rithöfundarins Sally Rooney. Bækurnar voru teknar úr sölu á Bretlandseyjum eftir að útgefandi hennar, Faber, sagði ekki hægt að greiða Rooney sölutekjur af bókunum. Það er vegna þess að hún sagðist ætla að láta ágóðann renna til samtakanna Palestine Action, sem eru á bannlista breskra stjórnvalda samkvæmt skilgreiningu hryðjuverkalaga. Á sama lista eru til að mynda Hezbollah-hreyfingin í Líbanon og palestínsku vígasamtökin Hamas.

Bækur Rooney hafa notið fádæma velgengni en meðal þekktra bóka sem hún hefur skrifað eru Conversations with Friends og Normal People, sem báðar hafa verið þýddar á íslensku og heita Okkar á milli og Eins og fólk er flest. Samnefndir þættir byggðir á síðarnefndu bókinni fóru sigurför um heiminn þegar þeir voru fyrst sýndir árið 2020. Sala sums staðar aukist tífalt Jenni Doherty, eigandi bókabúðarinnar Little Acorns í Derry á Norður-Írlandi, segir við AFP-fréttaveituna að hún hafi getað haldið áfram að selja metsölubækur Rooney með því að fá þær í gegnum birgja handan landamæranna, á Írlandi, heimalandi Rooney. Þar eru samtökin Palestine Action ekki bönnuð og því eru engar…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS