Bæklingnum fyrst og fremst ætlað að fræða en ekki hræða
What the source reports
Dómsmálaráðherra segir nýjum almannavarnabæklingi fyrst og fremst ætlað að fræða fólk um breytt öryggisástand í heiminum. Í sambærilegum bæklingum á Norðurlöndunum er talað um stríð og átök en í íslenska bæklingnum er almennt talað um alvarlega atburði, áskoranir og ástand. Spurð hvort stjórnvöld óttist að hræða fólk segir Þorbjörg Sigríður ekkert Norðurlandanna hafa farið nákvæmlega sömu leið. „Markmiðið er ekki að hræða heldur einfaldlega að fræða um það hvað þarf að vera til staðar inni á mínu heimili, komi til þess að aðstæður breytist í grundvallaratriðum. “ Spurð hvort hún telji líklegt að bæklingurinn berist inn á öll heimili í ljósi þess að hann verði ekki borinn út segist Þorbjörg telja að allir sem vilji eignast bæklinginn geti það.
Hægt verður að nálgast hann í prentaðri útgáfu á völdum stöðum á landinu hjá björgunarsveitum Landsbjargar samhliða sölu Neyðarkallsins. Þá verður hann einnig aðgengilegur á island. is og verumvidbuin. is. Bæklingurinn verður aðgengilegur á íslensku, ensku og pólsku sem og á auðlesnu máli og táknmáli. Dómsmálaráðherra og yfirlögregluþjónn almannavarnadeildar segja nýjum almannavarnabæklingi ætlað að fræða en ekki hræða. Hann sé varfærnislegri í orðalagi en á hinum Norðurlöndunum. Ekkert land fari nákvæmlega sömu leið. Runólfur Þórhallsson, yfirlögregluþjónn almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, afhenti ráðherrum bæklinginn að loknum ríkisstjórnarfundi í dag. Hann segir að til skoðunar hafi komið að bera bæklinginn út en að flestir séu þannig tengdir í…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗