Bæjarstjóra hampað af Time fyrir að taka sér fæðingarorlof
What the source reports
Shoko Kawata vakti mikla athygli fyrr á árinu þegar hún tilkynnti að hún hygðist taka sér fæðingarorlof, fyrst allra bæjarstjóra í Japan. Fyrir ákvörðun sína hefur tímaritið Time skipað henni á lista yfir 100 áhrifamestu, rísandi stjörnur heims. Kawata er 36 ára bæjarstjóri í bænum Yawata sem er rétt sunnan við borgina Kyoto í Japan. Þegar Kawata var kjörin í embættið árið 2023, þá 33 ára gömul, var hún jafnframt yngsta konan til að gegna starfi bæjarstjóra í landinu.
Fréttamiðillinn Japan Times greinir frá því að fyrir ákvörðun sína hafi Kawata fengið bæði hól og last í Japan þar sem hlutfall kvenna í stjórnmálum er afar lágt og kynbundin mismunun á vinnustað er þeim oft fjötur um fót. Varpar ljósi á vandamál sem valda fólksfækkun Í umsögn Time um val þeirra á Kawata segir jafnframt að gagnrýnin sem beindist að henni hafi varpað ljósi á þau vandamál sem valda stöðugri fólksfækkun í landinu. Miklar kröfur atvinnurekenda og hærri framfærslukostnaður hefur gert fólki erfiðara um vik við að stofna fjölskyldu. Í stjórnartíð Kawata hefur fjölskylduvænum lausnum hins…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗