ASÍ styður áform ráðherra: Au-pair kerfið leið til að fá ódýrt vinnuafl inn á íslenskt heimili
What the source reports
Alþýðusamband Íslands styður áform dómsmálaráðherra um að veita fólki utan EES ekki dvalarleyfi til að koma hingað til lands sem au-pair. Sá hluti frumvarps ráðherra var unninn í samráði við ASÍ. Átta af hverjum tíu sem fengu slík leyfi í fyrra komu frá Filippseyjum. Ungmenni frá Filippseyjum, mest konur, hafa komið í stórum stíl til Íslands síðustu ár á svokölluðu Au-pair leyfi, í vistráðningu. Frá 2017 til 2024 voru 766 dvalarleyfi gefin út og 78% þeirra voru til Filippseyinga. Á síðasta ári fóru 80 prósent allra leyfa til fólks utan EES til Filippseyinga. Nái frumvarp dómsmálaráðherra fram að ganga verður útgáfu leyfa til fólks utan EES, vegna vistráðningar, hætt. Þau sem þegar hafa dvalarleyfi halda því þó út leyfistímann. Þá verður enn hægt að koma á au-pair sambandi innan Evrópu. Nýlega var sama breyting gerð í Noregi.
Verkalýðshreyfingin hefur viðrað áhyggjur af vistráðningarkerfinu, sér í lagi vegna fólks sem kemur frá ríkjum utan EES, því það hefur nær engin réttindi og ekki leyfi til að sækja aðra vinnu í landinu ef vistin gengur illa og hefur lítið bakland. ASÍ styður áform dómsmálaráðherra um að hætta útgáfu dvalarleyfa til fólks utan EES sem kemur til Íslands í vistráðningu, sem Au-pair. Erfitt er að tryggja réttindi þeirra og aðbúnað, segir vinnumarkaðssérfræðingur. Leið til að fá ódýrt vinnuafl inn á íslensk heimili „Upprunalegur tilgangur er menningarskipti en þetta virðist vera orðin leið til þess að fá ódýrt vinnuafl inn á íslensk heimili,“ segir Saga Kjartansdóttir, sérfræðingur í vinnumarkaðsmálum hjá ASÍ. Fólk sé þá farið að vinna mun meira en gert er ráð fyrir og njóti ekki réttinda kjarasamninga né stéttarfélaga. Eins og lögin eru núna má einstaklingur í vistráðningu aðstoða fjölskylduna í allt að 30 klukkustundir á viku og fá vasapening sem…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗