„Þarna byrjar nýr kafli í mínu lífi og hann er jafngamall syni mínum“
What the source reports
Bergur Ebbi Benediktsson hefur sent frá sér nýja bók, Öld ímyndunaraflsins. Bókinni er lýst sem hugmyndaferðalagi um nútímann, nýliðna sögu og framtíðina. Skrifin eru persónulegur óður til skapandi hugsunar, töfra tungumálsins og alls þess sem gefur lífinu gildi. Bergur kíkti í Fram og til baka á Rás 2 og ræddi við Felix Bergsson um bókina, tilurð hennar og stiklaði á stóru yfir það sem drifið hefur á daga hans. Í dagskrárliðnum Fimman fór hann yfir fimm tölvur sem hafa komið í líf hans á mismunandi tímaskeiðum og áhrif tæknibyltingar á tímann. Sjálfur starfar Bergur ekki við tölvur, hann er hvorki forritari né tölvunörd en kveðst hafa átt í tilfinningalegu sambandi við tölvurnar. Tölvur móta lífið Það er skemmtileg áskorun að finna einhverja fimm hluti sem geta endurspeglað einhverja þróun í lífi manns. Ég held ég hafi ofhugsað þetta en niðurstaðan er meira viðeigandi en ég hefði haldið.
Ég er að reyna að súmmera inn á mín hugðarefni þessa dagana sem er áhrif tækninnar á okkur og sjálfsmynd okkar. Ég komst að því að tölvur hafa mótað líf mitt mikið. „Konan mín er sátt“ Bókin, Öld ímyndunaraflsins, hefur fengið afar góðar viðtökur en Bergur segir mikilvægast að hann sé sjálfur, ásamt sínum nánustu, ánægður með verkið. Hún er að fá flottar viðtökur en það er klisja að segja það en það skiptir mestu máli að vera sáttur sjálfur. Konan mín er sátt. Það skiptir eiginlega öllu máli. Ef maður er ekki að gera þetta fyrir sjálfan sig, maður er að kvitta fyrir eigin hugsanir og líður eins og maður hafi gert því skil þá fer þetta vel. „Held að mamma hafi aldrei dýft fingurgóm á lyklaborð“ Hann er fæddur árið 1981 og segir að tölvur hafi verð lítill hluti af lífi hans framan af. Fjölskyldan flutti til Svíþjóðar árið 1985 og þegar þau komu til baka þremur árum síðar var fyrsta…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗