One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Andri varði titilinn og Anna Edda vann sinn fyrsta

Andri varði titilinn og Anna Edda vann sinn fyrsta

IcelandBy Fréttastofa RÚVOct 31, 2026, 4:02 PM
Andri varði titilinn og Anna Edda vann sinn fyrsta
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDOct 31, 2026, 4:02 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

Opna Norðurlandamótið í skylmingum fer fram í Laugardalnum þessa helgina og leikið var til úrslita í einstaklingsflokki í dag. Andri Nikolaysson Mateev, fremsti skylmingamaður okkar Íslendinga, stefnir hátt og hefur sett stefnuna á Ólympíuleika. Hann var þó ekki eini íslenski keppandinn sem gerði vel í dag því þrír íslenskir skylmingamenn voru í undanúrslitum og mætti Andri Emil Ísleifi Sumarliðasyni í úrslitunum. Andri fór þar með sigur af hólmi og varði titil sinn á þessu móti frá síðasta ári. „Markmiðið er að komast til LA 2028. Það styttist í að Ólympíutímabilið byrji, það er í maí á næsta ári.

Nú erum við bara að vinna í því sem ég get bætt og orðið öruggari í. Við æfum á hverjum einasta degi og leggjum áherslu á hluti sem eru óþægilegir fyrir mig. Ég er mjög spenntur fyrir næstu mótum og fer á fullri ferð áfram. “ Andri er búsettur í Róm á Ítalíu þar sem hann æfir af kappi. Opna Norðurlandamótið í skylmingum með höggsverði stendur yfir nú um helgina í Baldurshaga í Laugardal. Í dag voru úrslitaleikirnir í einstaklingsflokki og þar var besti skylmingamaður þjóðarinnar meðal keppenda. Fyrsti alþjóðatitillinn í hús Í kvennaflokki var líka alíslensk úrslitaviðureign. Þar mættust Ingibjörg Laufey Guðlaugsdóttir og Anna Edda Gunnarsdóttir Smith. Anna Edda fór með sigur af…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS