One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
LATEST
HomeIcelandAndar köldu milli Seyðfirðinga og Kaldvíkur

Andar köldu milli Seyðfirðinga og Kaldvíkur

IcelandBy Fréttastofa RÚVSep 13, 2026, 3:17 PM
Andar köldu milli Seyðfirðinga og Kaldvíkur
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDSep 13, 2026, 3:17 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

Uppbygging laxeldisiðnaðar í Seyðisfirði snýst um fyrirtækjarekstur – ekki vöxt samfélagsins að mati formanns félagsins Vár sem beitir sér gegn komu laxeldis í fjörðinn. Á föstudag var greint frá því að fyrirtækið Kaldvík hefði fengið rekstrarleyfi fyrir tíu þúsund tonna laxeldi í Seyðisfirði. Áform um eldi á svæðinu hafa mætt talsverðri andstöðu Seyðisfirðinga. Umræður mynduðust um leyfið á Facebook-síðu Vár - Félags um vernd fjarðar í gær. Maður, sem titlaði sig sem starfsmann Kaldvíkur á Facebook, skrifaði þar eftirfarandi: „Sama fólkið var á móti Norrænu, svo Síldarvinnslunni og skemmtiferðaskipunum. Nú er það fiskeldið. Á sama tíma getur þetta fólk ekki rekið sjoppu og tæp 90% íbúa eru á bótum eða á launum hjá hinu opinbera. Fiskeldið er augljóslega ekki vandamálið. “ Athugasemdinni hefur síðan verið eytt. Benedikta Guðrún Svavarsdóttir, formaður Vár, segir ummælin dæma sig sjálf.

„Þetta eru ótrúlega sorgleg ummæli og sýna einmitt hvað það er lítill skilningur. Það að segja að 90% íbúa séu á bótum er náttúrlega bara algjör hneisa og niðurlægjandi,“ segir hún. Fréttastofa sendi Kaldvík fyrirspurn vegna málsins. Fyrirtækið segir manninn ekki hafa starfað hjá því í nokkur ár. „Ummælin endurspegla á engan hátt skoðanir Kaldvíkur eða þau gildi sem félagið stendur fyrir. Kaldvík leggur áherslu á virðingu og uppbyggilegt samtal við íbúa og hagsmunaaðila í þeim byggðarlögum þar sem félagið starfar, og tekur ekki undir ummæli af þessu tagi,“ segir í svari Kaldvíkur Þarf ekki að bjarga Seyðisfirði Benedikta Guðrún segir Kaldvík ekki hafa átt formlegt samtal við Seyðfirðinga þrátt fyrir andstöðu þeirra við komu laxeldis. Það boðaði þó til samráðsfundar með íbúum meðan á leyfisveitingarferlinu stóð. „Þeir hafa haldið einn fund. Þeir fylltu hús og mjög margir voru óánægðir á…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS