One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Árás á eyju á Hormússundi – Íranar segja boltann hjá Bandaríkjunum

Árás á eyju á Hormússundi – Íranar segja boltann hjá Bandaríkjunum

IcelandBy Fréttastofa RÚVNov 3, 2026, 11:48 AM
Árás á eyju á Hormússundi – Íranar segja boltann hjá Bandaríkjunum
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDNov 3, 2026, 11:48 AM
NEWS BRIEF

What the source reports

Bandaríkjaher gerði í dag árásir á írönsku eyjuna Qeshm á Hormússundi í dag. Íranskir fjölmiðlar segja fimm sprengingar hafa heyrst og að tvær orrustuþotur hafi sést. Nokkrir bandarískir fjölmiðlar, eins og CNN, The New York Times og fleiri, hafa eftir bandarískum embættismönnum að árásirnar hafi verið gerðar í varnarskyni. Þá hafi yfirvöld ákveðið að tilkynna ekki um þær sérstaklega til að koma í veg fyrir ótta um að Bandaríkjaher væri aftur að hefja stórfelldar árásir á Íran. Bandaríkin og Ísrael hófu stríð við Íran með árásum í lok febrúar. Stjórnvöld í Ísrael segjast ekki hafa tekið þátt í síðustu árásum, samkvæmt AFP-fréttaveitunni. Stutt er síðan Donald Trump Bandaríkjaforseti lýsti því yfir að samningur við Íran væri mögulega í farvatninu.

Þingkosningar eru í Bandaríkjunum í dag og margir landsmenn eru ósáttir við verðhækkanir sem raktar eru til stríðsins við Íran og lokunar Hormússunds. Óbeinar viðræður í gangi Ríkisfjölmiðar í Íran hafa eftir utanríkisráðherranum, Abbas Araghchi, að óbeinar viðræður við Bandaríkin séu í gangi. Í ljósi viðkvæmrar og alvarlegrar stöðu sé lögð áhersla á að ræða saman. Aðalsamningamaður Írans, Mohammad Bagher Ghalibaf, sagði í dag að þó að Íranir væru tilbúnir í stríð hafi viðbrögð þeirra við umleitunum Bandaríkjanna hafi verið skynsamleg. „Nú er boltinn hjá Bandaríkjunum, að koma í veg fyrir stríð,“ sagði Ghalibaf. Olíuverð féll um rúm sjö prósent í gær þegar vonir glæddust um að ríkin myndu semja. Þá höfðu forseti og varaforseti Bandaríkjanna báðir lýst yfir bjartsýni um að samningar tækjust brátt. Vance sagður hafa sent Írönum bréf Fjölmiðillinn Axios greindi frá því í síðustu viku að JD Vance…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS