Áfram mótmælt í Evrópu og Molotov-kokteil kastað í lögregluþjón
What the source reports
Ungmenni gripu til mótmæla í tugum þýskra borga í dag. Þau segja pólitíska elítu hunsa áhyggjur þeirra og kalla eftir afsögn Friedrich Merz Þýskalandskanslara. Mótmælin voru skipulögð af hópi sem kallast „GenZ regelt! “ sem þýða mætti sem „Z-kynslóðin sér um þetta! “ Hópurinn segir að 120 þúsund manns hafi tekið þátt í mótmælunum sem lögregla segir hafa að mestu verið „mjög friðsæl“. Í Hamborg og Köln beitti lögregla vatnsbyssum á mótmælendur sem köstuðu flugeldum. Einnig var mótmælt í Berlín en mótmælin þar voru ekki skipulögð af „GenZ regelt! “-hópnum. Þar var eggjum og flöskum kastað í lögreglu.
Molotov-kokteil kastað í lögregluþjón í París Keimlík mótmæli hafa verið á Ítalíu og í Frakklandi síðustu vikur. Í dag hafa hundruð þúsunda Frakka mótmælt lögregluofbeldi og háum framfærslukostnaði, meðal annars. Fleiri en 420 hafa verið handtekin. Mótmælin í Frakklandi voru með rólegra móti fyrst um sinn. Samkvæmt yfirvöldum mótmæltu 70 þúsund manns í París. Fjöldi mótmælenda klæddist hrekkjavökubúningum. Meðal annars sáust skilti sem á stóð „Engin þörf á táragasi til þess að framtíðin líti ömurlega út“ og „Klædd sem reiður borgari á hrekkjavökunni“. Síðdegis fór að bera á fregnum af átökum í París milli mótmælenda og fjölmenns liðs lögreglu. Mótmælendur köstuðu grjóti í lögreglu sem svaraði með táragasi og kylfum. Einn…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗