Áfram fjölskyldufyrirtæki en ný fjölskylda
What the source reports
Forstjóri Samskipa fullyrðir að vilji nýrra eigenda standi til þess að efla starfsemina á Íslandi. Íslendingar hafa haldið um stjórnartaumana í félaginu í 80 ár en það er nú komið að fullu í erlenda eigu. Kaup spænska fyrirtækisins Boluda á Samskipum í gær vöktu töluverða athygli. Samskip eiga sér langa sögu á Íslandi, voru stofnuð 1990 og byggð á grunni skipadeildar Sambandsins sáluga sem var stofnuð árið 1946. Félagið hefur verið skráð í Hollandi frá 2007 en stór hluti starfseminnar er hér á landi og forstjóri samstæðunnar fullyrðir að svo verði áfram. „Það mun mjög lítið breytast til að byrja með en svo erum við mjög spenntir að efla starfsemina frekar og það getur komið annað hvort með því að bæta við siglingaleiðum eða bæta við nýjum skipum.
Boluda-hópurinn er mjög spenntur að fjárfesta í Samskipum og starfsemin á Íslandi er okkur mjög mikilvæg enda erum við Íslendingar og félagið kemur héðan,“ segir Ólafur Orri Ólafsson, forstjóri Samskipasamstæðunnar. Félagið var í 80% eigu hjónanna Ólafs Ólafssonar og Ingibjargar Kristjánsdóttur og 20% í eigu hjónanna Hjörleifs Jakobssonar og Hjördísar Ásberg. Spænska félagið kaupir allan hlut þeirra. Kaupin eiga sér töluverðan aðdraganda. Ólafur Orri segist hafa hitt Ignacio Boluda fyrir þremur árum og að eftir samtal þeirra hafi félögin farið að starfa saman. Spænska félagið kaupir alla starfsemina erlendis og hér heima, þar með talið Jónar Transport. „Kaupverðið og kaupsamningurinn er trúnaðarmál og því verður ekki deilt. “ Kaupin ganga í gegn um áramótin og eru háð samþykki erlendra eftirlitsaðila. Ólafur Orri segist ekki sjá neinar hindranir í vegi viðskiptanna. Slagurinn við Samkeppniseftirlitið fylgir með í pakkanum Fyrir þremur árum sektaði Samkeppniseftirlitið Samskip um 4,2 milljarða króna vegna ólöglegs samráðs við…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗