One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
LATEST
HomeIcelandAðalatriði varnarsamkomulags um Grænland frá 1951

Aðalatriði varnarsamkomulags um Grænland frá 1951

IcelandBy Fréttastofa RÚVSep 22, 2026, 2:16 PM
Aðalatriði varnarsamkomulags um Grænland frá 1951
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDSep 22, 2026, 2:16 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

Nýtt varnarsamkomulag á milli Danmerkur, Grænlands og Bandaríkjanna verður undirritað í dag þegar Mette Fredriksen forsætisráðherra Danmerkur og Jens-Frederik Nielsen, formaður Naalakkersuisut, heimastjórnar Grænlands, hitta Donald Trump forseta Bandaríkjanna í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York. Ýmsar getgátur hafa verið uppi um það hvaða breytingar verði gerðar á fyrirliggjandi samningi landanna en nákvæmt innihald nýja samningsins er enn þá á huldu. Núgildandi samningur var fyrst undirritaður árið 1951 og uppfærður árið 2004 með Grænland sem sjálfstæðan aðila að samningnum. Danska ríkisútvarpið (DR) hefur tekið saman þrjú mikilvægustu ákvæði þess samnings. 1. Bandaríkin og Danmörk deila ábyrgð á öryggi Grænlands Bandaríkin og Danmörk skuldbinda sig til að sameinast um varnir Grænlands og standa gegn vopnuðum árásum.

Einnig vinna löndin saman að því að leysa þau verkefni sem krafist er af þeim í samræmi við áætlanir NATO um varnir á Grænlandi. Þá er tekið fram að fánar bæði Danmerkur og Bandaríkjanna skuli blakta yfir hernaðarlegum varnarsvæðum. 2. Herlið Bandaríkjanna getur ferðast frjálst um Grænland og stofnað til herstöðva Bandaríkin geta komið upp herstöðvum, húsum, starfsliði, stýrt aðgerðum og hreyfingum farartækja á lofti og legi og hafa almennt leyfi til að byggja upp innviði fyrir hernaðaraðgerðir. Þessu ákvæði fylgir hins vegar sá fyrirvari að leyfi Bandaríkjanna megi ekki stangast á við sjálfstæð yfirráð konungsríkisins Danmerkur yfir varnarsvæðum eða rétt danskra yfirvalda til frjálsrar farar um allt Grænland. Þar að auki er tekið fram í annarri grein samningsins að dönsk stjórnvöld áskilji sér rétt til að nýta varnarsvæði í samráði við ríkisstjórn Bandaríkjanna. DR bendir á að Bandaríkin hafi í gegnum tíðina haft meira en 30 herstöðvar og yfir…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS