860 metrar af óhefluðu timbri
What the source reports
Sölvi Halldórsson skrifar: Verklund er mikils metin sem mannkostur. Að fara af stað í framkvæmdir fær fólk til að tala og kaffistofan er tilbúin að hlusta þegar sagt er frá að til standi að taka baðherbergið í gegn. Fólk hefur skoðun á flísum, plast- eða harðviðarparketi. Hvort eigi að halda veggnum eins og hann er eða brjóta niður til að opna frá eldhúsi inn í stofu. Þess vegna á ný bók Hjálmars Sveinssonar eflaust eftir að höfða til margra. Húsið – hlýskeið er skáldævisaga sem, meðal annars, segir samviskusamlega frá framkvæmdum á tveggja hæða íbúðarhúsi á Baldursgötu 10. Eigendur þess, sögumaðurinn og kona hans, hafa ákveðið að reisa nýja hæð ofan á húsið. Hún á að vera 100 fermetrar og verkfræðingurinn á teiknistofunni sem þau fá í lið með sér reiknar út að verkið muni kosta um 50 milljónir. Fyrir framkvæmdunum taka þau óverðtryggt lán með fastbundnum vöxtum fyrstu þrjú árin.
Hvað verður mánaðarlega afborgunin af því há til að byrja með? Og hvað með að þremur árunum liðnum? Ekki ætla ég að spilla lestrargleðinni fyrir lesendum. Fasteignir og framkvæmdir eru og hafa verið í deiglunni í íslensku menningarlífi. Á fjölum Þjóðleikhússins er leikrit Friðgeirs Einarssonar, Nýtt eldhús eftir máli, sem fjallar um hjón sem vilja setja upp nýja eldhúsinnréttingu. Leikfélag Akureyrar sýnir í vetur litáíska verkið Fasteignamartröðin sem fjallar um fyrstu íbúðakaup. Þá eru fjögur ár síðan arkitektinn og rithöfundurinn Anna María Bogadóttir vakti athygli með margmiðlunarverkinu Jarðsetning, sem fjallaði um niðurrif Iðnaðarbankans við Lækjargötu með ævisögulegu ívafi. Þá má nefna ljóðabók Elínar Eddu Þorsteinsdóttur Núning (2022) og skáldævisöguna Jarðnæði (2011) eftir Oddnýju Eir Ævarsdóttur, sem báðar skoða veruleika okkar út frá fasteignum, framkvæmdum og íverustöðum.…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗