8 ára, skynsamur og sókndjarfur
What the source reports
Haustmót Taflfélags Reykjavíkur var haldið í síðasta mánuði. Helgi Fannar Óðinsson tók þátt í opnum flokki , ásamt 26 öðrum skákmönnum á breiðum aldri. Við upphaf mótsins var Helgi sá 16. í stigaröðinni en landaði þó öruggum sigri þegar síðustu umferð var enn ólokið. „Þetta var mjög erfitt“ segir Helgi Fannar, sem tefldi níu 90 mínútna skákir á mótinu. Hann gerði tvö jafntefli, tapaði einni skák og vann sex. Helgi og foreldrar hans segja að sigurinn hafi komið þeim öllum á óvart. „Þarna voru mjög margir andstæðingar sem voru töluvert reyndari og stigahærri en Helgi.
Þess vegna kom þetta kannski svona á óvart að hann skyldi vinna þetta", segir Björn Ívar Karlsson, skólastjóri Skákskólans. Helgi segist hafa lært að tefla þegar hann var fjögurra ára en til að byrja með hafi hann bara viljað leikið sér með taflmennina. Foreldrar hans segja áhugann á leikreglunum þó hafa vaknað fljótt og nú sitji hann oft löngum stundum yfir taflborðinu heima, æfi sig og pæli. Það þarf nefnilega að æfa sig til þess að verða góður í skák, að sögn Helga sjálfs. „Hann er kominn fram úr mér núna,“ segir Óðinn. „Það er langt síðan hann byrjaði að vinna mig“ stingur Rebekka Ósk Heiðarsdóttir, mamma Helga Fannars, inn í. Björn…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗