70 ár frá flóttanum til Íslands: „Ekki með mikið annað en sígarettupakkann sinn í vasanum“
What the source reports
Þess er minnst í dag að 70 ár eru liðin frá því að hópur flóttamanna frá Ungverjalandi kom til Íslands. Þetta var fyrsti hópur flóttamanna sem Íslendingar tóku á móti. Þennan dag fyrir sjötíu árum, 23. október 1956, hófst ungverska byltingin - en það leið ekki á löngu þar til Sovétríkin brutu uppreisnina á bak aftur og hrifsuðu aftur til sín völdin með þeim afleiðingum að þúsundir Ungverja voru drepnar, og margir flúðu. 52 Ungverjar flúðu til Íslands. Ungverska menningarfélagið á Íslandi stendur ásamt Rauða krossinum fyrir minningarhátíð í Hlégarði í Mosfellsbæ í dag og kvöld. Mikael Fransson var einn þeirra sem neyddust til að flýja heimaland sitt. Hann bar ungverska nafnið Miklós Tölgyes áður en hann tók íslenska nafnið. Fer að heiman í miklum flýti „Hann fer að heiman sjálfsagt í miklum flýti, ég hugsa það.
Í svona byltingu, hafi hann gert það og ekki með mikið annað en sígarettupakkann sinn í vasanum,“ segir Hulda María Mikaelsdóttir Tölgyes, dóttir Mikaels. Þaðan lá leið Mikaels í flóttamannabúðir í Austurríki, og svo til Íslands. Þetta var í fyrsta sinn sem íslensk stjórnvöld tóku á móti hópi flóttamanna en frumkvæðið kom að miklu leyti frá Rauða krossinum. Yngsti flóttamaðurinn var þriggja ára og sá elsti 54 ára. „Enginn hugrakkari en hann að hafa komist hingað“ „Það er yndislegt náttúrulega að geta geta boðið fólki í skjól sem er í þessum aðstæðum,“ segir Hulda María. „Ég þakka náttúrulega fyrir það á hverjum degi, mitt líf og og barnanna minna og það er enginn enginn hugrakkari en hann að hafa hafa komist hingað finnst mér,“ segir Hulda um ferðalag föður síns til Íslands. Sváfu í svefnpoka uppi á sviði í Hlégarði En eins og gefur að skilja var Ísland, um hávetur, framandi. Hulda segir pabba sinn þó alltaf hafa talað fallega um Ísland og verið þakklátur…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗