10 þúsund nemendur mótmæltu í Kaupmannahöfn
What the source reports
Nemendur víða í Danmörku tóku sér frí í skólanum í dag til að mótmæla skertum styrkjum til náms sem stjórnvöld fyrirhuga. Margir tóku rútu til Kaupmannahafnar þar sem var skipulögð mótmælaganga frá Ráðhústorginu að Kristjánsborgarhöll, en að auki voru mótmæli á öðrum stöðum í Danmörku og á sumum stöðum lokuðu mótmælendur fyrir aðgang að skólum. Talið er að um 10 þúsund manns hafi mætt á mótmælin í Kaupmannahöfn. Breytingin sem verið er að mótmæla felur í sér að nemendur sem búa í foreldrahúsum fá ekki lengur námsstyrk ef foreldrar þeirra eru með meira en 710.
077 danskar krónur í árstekjur fyrir skatt. Þetta eru um 13 milljónir íslenskra króna. Þá er styrkurinn skertur ef tekjurnar eru á milli 419. 589 króna og 710. 077 króna. Lægri upphæðin jafngildir um 7,7 milljónum íslenskra króna. Að auki þurfa útskriftarnemendur að hafa unnið að meðaltali fjórar klukkustundir á viku í 18 af síðustu 24 mánuðum náms síns til að eiga rétt á dagpeningum fyrir útskriftarnema að námi loknu. Þetta hefur áhrif á um 80 þúsund nemendur sem flestir eru á framhaldsskólaaldri, 18-19 ára. Um 10 þúsund nemendur komu saman í miðborg Kaupmannahafnar í dag til að mótmæla skerðingum á námsstyrkjum.…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗